Lést eftir að skrúfað var fyrir rafmagnið

Folole Muliaga
Folole Muliaga AP

Kona lést á Nýja-Sjálandi í fyrra eftir að orkufyrirtæki skrúfaði fyrir rafmagn á heimili hennar. Konan, sem þurfti á aðstoð súrefniskúts að halda, lést tveimur tímum eftir að orkufyrirtækið skrúfaði fyrir rafmagnið vegna skuldar upp á rúmlega 30 nýsjálenska dali, um 1.500 krónur íslenskar. Þetta kom fram við málflutning hjá dánardómsstjóra í dag.

Folole Muliaga, 44 ára, leikskólakennari, lést þann 29. maí í fyrra er Mercury Energy skrúfaði fyrir rafmagnið. Vakti dauði hennar mikla reiði meðal íbúa á Nýja-Sjálandi og sagði forsætisráðherra landsins, Helen Clark, á þeim tíma að aðgerðir orkufyrirtækisins væru ómannúðlegar og ólíðandi.

Eiginmaður Muliaga,  Lopaavea, sagði í réttinum í morgun að hann hefði  haft samband við Mercury Energy í byrjun maí í fyrra til þess að reyna að semja um greiðslu reikningsins með afborgunum án árangurs. Hann greiddi reikninginn í maí en þrátt fyrir það skrúfaði fyrirtækið fyrir rafmagnið á heimili þeirra átta dögum síðar með fyrrgreindum afleiðingum. „Á þeim tíma held ég að aleiga okkar hafi verið 34,44 dalir, (tæpar tvö þúsund krónur)" sagði hann. 

Mercury Energy segir hins vegar að skuldin hafi verið 168 dalir, rúmar 9.500 krónur. 

Lopaavea Muliaga sagði í morgun að hann hafi verið í vinnunni þegar slökkt var á rafmagninu. Þegar hann kom heim var kona hans látin og tveir sjúkraflutningamenn í húsinu. Eiginkona hans, sem var langt yfir kjörþyngd, þurfti á súrefni að halda 16 tíma á sólarhring með aðstoð súrefniskúts.

„Eftir að rafmagnið var tekið af sat ég í myrkrinu ásamt börnum mínum þar sem Mercury Energy neitaði að tengja rafmagnið á ný fyrr en klukkan átta morguninn eftir," sagði hann við réttarhöldin í morgun.

Í kjölfar andláts Folole Muliaga tilkynnti orkufyrirtækið að það myndi endurskoða samninga við viðskiptavini sem ættu við heilsufarsvandamál að stríða og þá sem ættu í fjárhagserfiðleikum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert