Enn einn sigur alls Rússlands

Dima Bilan og félagar hans fagna sigri í Belgrad í …
Dima Bilan og félagar hans fagna sigri í Belgrad í gær. Reuters

Bæði Dmitrí Medvedev, forseti Rússlands, og Vladímír Pútín, forsætisráðherra, hafa sent rússnesku poppstjörnunni Dima Bilan heillaóskir eftir að hann vann Eurovision söngvakeppnina í gær.  „Þetta er ekki aðeins persónulegur sigur Dima Bilans heldur einnig enn einn sigur alls Rússlands," sagði Pútín.

Rússar urðu nýlega heimsmeistarar í íshokkí og rússneska knattspyrnuliðið  Zenit frá St. Pétursborg varð Evrópubikarmeistari. 

Medvedev hringdi í Bilan til að óska honum til hamingju og sagðist viss um að Eurovisionkeppnin í Rússlandi á næsta ári yrði afar vegleg.

Embættismenn í bænum Ust-Dzheguta við Kákasusfjöll sögðu í morgun að gata yrði nefnd eftir söngvaranum en hann er fæddur í bænum.  

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert