Börn kynferðislega misnotuð

mbl.is

Liðsmenn friðargæslusveita Sameinuðu þjóðanna og hjálparsamtaka hafa beitt börn kynferðislegu ofbeldi og eru sum barnanna einungis sex ára gömul.

Fólkið, sem sent er á vettvang til að aðstoða börn í löndum þar sem styrjöldum er nýlega lokið, er að misnota þau, segja hjálparsamtökin Save the Children. Eftir að hafa framkvæmt rannsóknir á Fílabeinsströndinni, í Súdan og á Haítí mæla hjálparsamtökin með því að haft sé eftirlit með þessari þróun mála. Sameinuðu þjóðirnar segjast fagna rannsókninni og að hún verði skoðuð gaumgæfilega.

Hjálparsamtökin vilja meina að ógnvænlegasti hluturinn sé að málin séu sjaldan rannsökuð og gerendur sæti engum refsingum. Fórnarlömbin eru skelfingu lostin og þora ekki að kæra ofbeldismennina, að því er fram kemur á fréttavef BBC.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert