Tvö börn stungin til bana í Lundúnum

Karlmaður og kona á fertugaldri hafa verið handtekin á Englandi eftir að tvö börn, 5 ára gamall drengur og 4 ára stúlka, fundust látin í íbúð í Carshalton í Surre, úthverfi Lundúna. Talið er að þau hafi verið stungin með eggvopni. Sex mánaða gamalt barn hlaut einnig áverka og liggur alvarlega sært á sjúkrahúsi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert