Brown segir ákvörðun Davis skrípaleik

Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands.
Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands. Reuters

Forsætisráðherra Bretlands, Gordon Brown, sagði í dag að ákvörðun David Davis, þingsmanns Íhaldsflokksins, um að segja af sér þingmennsku í mótmælaskyni við  lagafrumvarp ríkisstjórnar landsins um að halda megi mönnum í varðhaldi 42 daga án ákæru séu þeir grunaðir um hryðjuverk, sé skrípaleikur.

Davis tilkynnti um ákvörðun sína í gær og hefur hún ekki fengið mikinn stuðning meðal flokksmanna Íhaldsflokksins. Skoðanakannanir benda til þess að almenningur í Bretlandi styðji frumvarp Brown.

Sagði Brown við fréttamenn í dag að allir geri sér grein fyrir því að þetta er orðið að skrípaleik og sé einungis til þess fallið að valda sundrungu meðal Íhaldsflokksins.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert