Mannskæð sjálfsvígsárás á Sri Lanka

Að minnsta kosti 12 manns létu lífið og 40 særðust í sjálfsvígsárás á Sri Lanka í morgun.  Fjölmörg skólabörn voru á meðal hinna særðu.  Skotmark árásarinnar var lögreglustöð í bænum Vavuniya í norðurhluta landsins, og voru þeir 12 sem létust lögreglumenn.

Stjórnarher Sri Lanka, segir tamíl tígra vera ábyrga fyrir árásinni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert