Njósnari hafði upp á Betancourt

Ingrid Betancourt með móður sinni Yolanda Pulecio í gærkvöldi.
Ingrid Betancourt með móður sinni Yolanda Pulecio í gærkvöldi. AP

Alvaro Uribe, forseti Kólumbíu, hvatti FARC samtökin til þess í gærkvöldi að sleppa öllum gíslum sínum eftir að þekktasti gísl samtakanna Ingrid Betancourt, fyrrum forsetaframbjóðandi í landinu, var frelsuð úr haldi þeirra í gær. Mun frelsum hennar vera árangur starfs njósnara sem störfuðu með samtökunum. Þetta kemur fram á fréttavef CNN.

Betancourt greindi frá því á blaðamannafundi í gær að hún hafi ekki vitað að björgun væri í nánd fyrr en hún var komin upp í þyrlu kólumbíska stjórnarhersins og fangaverði hennar var skyndilega hrint í gólfið og hann handjárnaður.  

Talið er að um 750 gíslar séu í haldi samtakanna, margir þeirra efnafólk sem samtökin hafa krafist lausnargjalda fyrir.

Auk hennar voru þrír bandarískir verktakar og ellefu kólumbískir lögreglu og hermenn frelsaðir úr haldi samtakanna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert