Dreifir huganum með körfubolta

Barack Obama.
Barack Obama. Reuters

Barack Obama dreifði huganum og losaði sig við spennu í dag með því að spila körfubolta. Án efa er margt sem hvílir á honum en í nótt mun ráðast hvort hann verði valdamesti maður í heimi.

Obama og fylgdarlið hans höfðu viðkomu í íþróttasal í vesturhluta Chicago seinnipartinn í dag. Ekki fékkst uppgefið við hvern forsetaframbjóðandinn spilaði. 

Meðan Obama beið úrslita í baráttunni við Hillary Clinton fyrir forsetaútnefningu Demókrataflokksins spilaði hann einnig körfubolta til að stytta sér stundir.

Fjölmiðlar vestanhafs velta fyrir sér hvort eins konar hjátrúarfull hefð sé að myndast hjá Obama en hún á sér rætur í flokkstjórnarfundinum í Iowa í janúar þar sem Obama bar sigur úr býtum og markaði upphaf sigurgöngu hans innan Demókrataflokksins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert