Kafbátur dreginn að landi

Búið er að draga rússneska kjarnorkukafbátinn þar sem 20 létust til hafnar í Bolshoi Kamen, flotaherstöð í grennd Vladivostok í Rússlandi. Auk þeirra sem létust urðu 21 fyrir gaseitrun þegar brunavarnarkerfi fór í gang um borð fyrir slysni, með þeim afleiðingum að Freongas lak út í andrúmsloftið.  

Þetta er stærsta slys um borð í slíkum bát frá því kjarnorkukafbáturinn Kursk sökk í Barentshafi árið 2000, og 118 létust.

Samkvæmt talsmanni flotans skemmdist kjarnorkukljúfurinn sem knýr bátinn ekki í slysinu og er geislun í grennd við bátinn „eðlileg“ að hans sögn.

Hinir látnu eru bæði starfsmenn skipasmíðastöðva og hermenn, en alls misstu sex sjómenn og 14 óbreyttir borgarar lífið. Heimildir AFP fréttastofunnar herma að 20 til viðbótar hafi orðið fyrir vægri eitrun en þeir fái aðhlynningu um borð í öðru skipi.  

Alls voru 208 um borð í kafbátnum þegar slysið varð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert