Æfðu innrásina í átján mánuði
Undirbúningur ísraelska hersins fyrir innrásina á Gaza stóð í átján mánuði, að sögn talsmanns hersins. Undirbúningurinn fór fram í yfirgefinni herstöð í eyðimörk en þar hafði verið reist eftirlíking af Gazaborg. Að minnsta kosti 500 Palestínumenn hafa fallið síðan árásir Ísraelshers á Gaza hófust lok desember, þar af tugir barna. Allt að 3000 hafa særst.
„Hermenn okkar þekkja hvern krók og kima í borginni og vita nákvæmlega hvar skotmörkin eru,“ sagði Avi Benayahou, talsmaður Ísraelshers í samtali við ísraelska sjónvarpið.
„Við byggðum líkan af borginni í Tsehilim herstöðinni í Negev eyðimörkinni, í Suðurhluta Ísraels, og æfðum innrásina í eitt og hálft ár. Okkur hefur orðið mjög ágengt í baráttunni gegn Hamas samtökunum en aðgerðirnar gætu dregist á langinn,“ sagði Benayahou.
Gazaborg er svo gott sem umkringd af tugum þúsunda ísraelskra hermanna. Ástandið þar er skelfilegt. Lítið sem ekkert símasamband er við borgina og hundruð þúsunda manna eru án rafmagns. Spítalar í borginni hafa verið án rafmagns í tvo sólarhringa og treysta á vararafstöðvar sem óttast er að gefi sig. Talið er að hörmungar íbúanna eigi enn eftir að versna en langvarandi skortur hefur verið á matvælum, eldsneyti og lyfjum. Illa gengur að koma neyðaraðstoð til íbúanna.
Þjóðir heims þrýsta nú mjög á um vopnahlé á Gaza. Shimon Peres, forseti Ísraels, sagði í dag að vopnahlé kæmi ekki til greina. Ísraelsmenn ætluðu að veita Hamas samtökunum ráðningu, en ekki stæði til að hernema Gaza á ný.
Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels hafnaði óskum þjóðarleiðtoga um vopnahlé en Dmitry Medvedev, forseti Rússlands, Nicolas Sarkozy, forseti Frakklands, Angela Merkel, kanslari Þýskalands og Tony Blair, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, þrýstu öll á Olmert í dag að gera hlé á aðgerðum ísraelska hersins.
Bloggað um fréttina
-
Frikkinn Kaldrifjuð áform Ísraela... -
Guðmundur Óli Scheving Mið- Austurlönd bíða Barack Obama ! -
Gísli Foster Hjartarson Aðgerða er þörf -
Björgvin R. Leifsson Árás síonasista var undirbúin burtséð frá öllum vopnahléum. -
Guðrún Sæmundsdóttir Hvað myndu íslendingar gera? -
Hallur Magnússon #9541 Ísraelar ætluðu alltaf að ráðast á Gaza þrátt fyrir vopnahlé ... -
Eva Hauksdóttir Rosalegur þrýstingur -
Jón Ármann Steinsson Bæði erfðastríð og trúarbragðastríð -
Ómar Bjarki Kristjánsson IDF notar klasasprengjur á gaza -
Sigurbjörn Friðriksson Úlfurinn, lambið og alþjóðasamfélagið.......... -
Ásgeir Kristinn Lárusson -Operation Cast Lead- -
Ævar Rafn Kjartansson 18 mánuðir síðan nasistar... afsakið gyðingar ætluðu að ráðast þar ... -
Sævar Helgason Ísland fordæmir innrásina á Gaza -
Gestur Guðjónsson Ísraelsstríðið og Íraksstríðið -
Ástþór Magnússon Wium Brown talar úr rassgatinu -
Vésteinn Valgarðsson Átján mánuði -
Guðbjörn Jónsson Óhugnanleg frétt um ásetningsmorð á saklausum borgurum
Erlent »
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- „Cameron stalst aðeins út fyrir“
- Tollurinn með milljarðamálverk í sinni vörslu
- DNA-próf sannar uppruna þorsks
- Kínverskar eftirlíkingar í bandaríska hernum
- Mannskætt lestarslys
- Einkarekin geimflaug á loft
- Kunnugleg andlit við kjötkatlana
- Fjögur börn létust í sprengjuárás í Írak
Mánudagur, 21.5.2012
- Fimmtungur sett kynferðislegar myndir á netið
-
Frakkar ætla frá Afganistan
- Myrti bróður sinn og sundurlimaði
- Vilja merkja vörur frá Ísrael
-
Egyptar kjósa forseta
- Vonir Le Pens um þingsæti í uppnámi
- Grikkir fá 23% lægri laun
- Varar Breta við íslenskri einangrun
- Margir heimilislausir eftir skjálfta
- Getnir eftir andlát föður og arflausir
- Fimm stjörnu flokkurinn vann sigur
- Dæmdur fyrir upptöku af herbergisfélaga
- Mannskætt rútuslys í Albaníu
- Óttast blóðuga borgarastyrjöld
- Kastaði börnum sínum fram af svölum
- Vilja Grikki áfram á evrusvæðinu
- Vatnið var rautt af blóði
- Þorpið fór á 84,6 milljónir
- Ráðherra til rannsóknar
- „Þið munuð deyja í dag, marxistar“
- Saleh lagður inn á spítala
- 14 aftökur í Íran í dag
- Náðist á upptöku
- Þúsundir hafast við í neyðarskýlum
- Skuldavandi Grikklands
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Sýrland
- News of the World
- Strauss-Kahn handtekinn
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 17. janúar 2009, Erlent Ísraelar lýsa yfir vopnahléi
- Sunnudagur, 21. desember 2008, Erlent Hafnar kröfu um árás
- Mánudagur, 16. febrúar 2009, Erlent Tveim eldflaugum skotið á Ísrael
- Laugardagur, 17. janúar 2009, Erlent Sarkozy til Jerúsalem
- Sunnudagur, 14. september 2008, Erlent Eldflaug skotið frá Gaza
-
Hjálpræðisherinn í Mjóddina
-
Lífeyrisþegar dragast aftur úr
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
-
Atkvæðagreiðslan öllum í hag
-
„Það má dúndra“
-
Komast leikandi upp úr riðlinum
-
Úlfar mun fylgjast með töktum þeirra bestu
-
Heilsuræktin í Elliðaárdalnum
Háskólakennsla
Verkefnisstjóri Stofnun Vigdísar Finnb...



































