Lýsa yfir neyðarástandi í Slóvakíu

Gasleiðslur í bænum Velke Kapusany í Slóvakíu, skammt frá landamærum …
Gasleiðslur í bænum Velke Kapusany í Slóvakíu, skammt frá landamærum Úkraínu Reuters

Ráðherra efnahagsmála í Slóvakíu, Lubomir Jahnatek, sagði á blaðamannafundi áðan í Bratislava að lýst verði yfir neyðarástandi í landinu í dag eftir að gasflutningar til landsins frá Rússlandi drógust saman um 70%.

Yfirmaður úkraínska gasfélagsins Naftogaz, Oleh Dubina, tilkynnti í dag að hann myndi fara til Moskvu á fimmtudag til þess að ræða deiluna um gasflutninga frá Rússlandi. Deilan, sem snýst um vangoldna reikninga Úkraínumanna, hefur mikil áhrif á gasflutninga til Evrópu en sex Evrópuríki hafa tilkynnt um að slökkt hafi verið á gasinnflutningi til ríkjanna í gegnum leiðslur sem liggja í gegnum Úkraínu frá Rússlandi. 

Evrópusambandið hefur lýst því yfir að þetta sé gjörsamlega óásættanlegt að ríki innan sambandsins fái ekki lengur gas flutt inn frá Rússlandi.  

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert