Lést eftir rifrildi í umferðinni

Tuttugu og níu ára Dani, sem í síðustu viku var stunginn í lungu og hjarta í rifrildi í umferðinni við annan ökumann og farþega hans, lést síðdegis í dag, að sögn lögreglunnar á Fjóni.

Samkvæmt frásögn lögreglunnar hófst rifrildið þegar ökumennirnir, sem þekktust, stöðvuðu bíla sína hlið við hlið við gatnamót. Ökumennirnir keyrðu síðan á bílastæði og þar lauk rifrildinu með hnífstunguárás.

Árásarmennirnir eru nú í gæsluvarðhaldi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert