Ný skotárás á Norðurbrú í Kaupmannahöfn

Frá Kaupmannahöfn.
Frá Kaupmannahöfn. mbl.is/Baldur Arnarsson

Maður var skotinn í magann á Norðurbrú í Kaupmannahöfn. Skotið var á manninn úr bíl sem keyrði framhjá, en fórnarlambið var að sögn vitna á göngu með barnavagn. Hleypt var af sjö til tíu skotum.

Nokkurt uppþot átti sér stað í kjölfarið í nágrenninu og hrópuðu íbúar í nærliggjandi húsum að lögregluliði sem kallað hafði verið út í kjölfar skotárásarinnar. Lögreglan vinnur nú að því að koma ró á fólkið. Þetta kemur fram á vef Politiken.

Nokkrir hafa þegar verið handteknir.


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert