Ósáttir við bann ESB við innflutningi á selaafurðum

Selveiðar við Kanada
Selveiðar við Kanada Reuters

Kanadísk stjórnvöld ætla að leita til Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar, WTO, fyrir hönd selveiðimanna en Evrópusambandið hefur lagt bann við innflutningi á selaafurðum. Viðskiptaráðherra Kanada, Stockwell Day, segist afar ósáttur við ákvörðun ESB enda telji kanadísk stjórnvöld að ákvörðun ESB brjóti gegn reglum WTO.

Hann segir að veiðarnar fylgi öllum reglum og að um vísindaveiðar sé að ræða. Samþykkt var á fundi utanríkisráðherra ESB að leggja bann við innflutningi á selaafurðum frá Kanada. Þetta þýðir að bannað er að selja vörurnar í öllum 27 ríkjum ESB. Þrír utanríkisráðherrar, Danmerkur, Rúmeníu og Austurríkis, sátu hjá við atkvæðagreiðsluna en aðrir ráðherrar greiddu atkvæði með banninu.

Talið er að um sex þúsund manns taki þátt í selveiðum í Kanada ár hvert og skilaði greinin um 10 milljónum Kanadadollurum í ár. Kanadamenn, Grænlendingar og Namibíumenn veiða um 60% þeirra 900 þúsund sela sem drepnir eru árlega. 
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert