Hýðingu fyrirsætu frestað
Sharía dómstóll í Malasíu frestaði í morgun að framfylgja dómi yfir fyrirsætu sem átti að hýða sex vandarhöggum. Konan var sakfelld fyrir að drekka bjór á almannafæri.
Kartika Sari Dewi Shukarno, 32 ára fyrirsæta í Malasíu var í júlí dæmd til að þola sex vandarhögg en til hennar sást þar sem hún saup á bjórglasi. Shukarno krafðist þess að dómnum yrði framfylgt á almannafæri, enda væri best að sem flestir horfðu á hýðinguna ef tilgangurinn væri sá að fæla konur frá áfengisdrykkju.
Múslímum í Malasíu er bannað að drekka áfengi, en fólki af öðrum trúarbrögðum er það heimilt. Múslímar sem verða uppvísir að neyslu áfengis eiga yfir höfði sér sekt, hýðingu eða allt að þriggja ára fangelsisvist. Afar sjaldgæft er að ákært sé í málum sem þessu.
Fulltrúar Sharía dómstólsins sóttu fyrirsætuna á heimili hennar í morgun og hugðust flytja hana til fangelsis skammt utan við Kuala Lumpur þar sem framfylgja átti dómnum. Þegar skammt var liðið á ferðina, var bifreiðinni snúið við og Shukarno látin laus.
„Ég er orðlaus. Fulltrúar dómstólsins sögðu mér ekki hvort ég yrði sótt aftur og hýdd síðar. Ég vil fá það svart á hvítu hvernig málið stendur,“ sagði Shukarno við fréttamenn.
Sahfri Abdul Aziz, talsmaður dómstólsins sagði að dómurinn stæði. Refsingunni hefði aðeins verið frestað fram yfir Ramadan, föstumánuð múslíma.
Háttsettur embættismaður lét hins vegar hafa eftir sér að uppákoman bæri merki þess að yfirvöld vildu láta málið falla í gleymsku.
Amnesty International hafa fordæmt dóminn og hvatt yfirvöld í Malasíu til að afnema hýðingar.
Bloggað um fréttina
-
Gulli litli Mikið asskoti... -
Alexander Kristófer Gústafsson Hvar eru feministnúna?
Erlent »
- Lögsæki ekki dómara
- Segir minni tiltrú á SÞ
- Seldi CIA gögn um rússneskar eldflaugar
- Fræg bygging eldi að bráð
- Spilling verður N-Kóreu að falli
-
Enn gýs í Eldhringnum
- Leggja niður störf og mótmæla
-
Tvær bílasprengjur í Sýrlandi
- Heimilislausir í skjól í Bakú
- Garzón gefst ekki upp
-
260 dauðir höfrungar á land
- Leitað að lausn á Maldíveyjum
- Hældi Breivik á Facebook
- Dönsk ungmenni vilja ekki í sturtu
-
Áframhaldandi ógnaröld í Homs
- Grikkjum sett hörð skilyrði
- Kvenhermenn nær vígvellinum
-
FBI birtir skjöl um Steve Jobs
-
Obama hrósaði Monti
- Garzón sakfelldur
- Rússar efins um þjóðabandalag
- Grikkir hafa náð niðurstöðu
- Dóná ísilögð í sex löndum
-
Mannskæð bílsprengja í Taílandi
- Slóvakar styðja Grikki ekki frekar
- Myrti stuðningsfulltrúa í Danmörku
- Cameron vill læra af Íslandi
-
Handtekinn forseti kom til Íslands
-
Bygging stóðst ekki kröfur
- Breivik var tölvuleikjasjúkur
- Hópnauðgun vekur deilur í Mósambík
- Skotmaðurinn er tvítugur
- Foringi Al-Qaeda í Pakistan látinn
- Ástralskir neita leynifangelsi
- Fjölskylda forsetans flúin
- Fimm konur drepnar af hlébarða
- Grikkir vongóðir um björgun
Miðvikudagur, 8.2.2012
-
Biður fyrir fórnarlömbum kulda
- Beit fréttakonu í beinni útsendingu
- Þernur fái neyðarhnappa
-
Neðanjarðarlest út af sporinu
- Fjölskylduharmleikur á Grænlandi
- Goðafoss um Saxelfi ísi lagða
- Bensínið aldrei dýrara í Danmörku
- Búið að handtaka árásarmanninn
- Dvínandi vonir Rúmena og Búlgara
- Sjálfsmorðssprengja í Sómalíu
Erlend málefni
- Strand skemmtiferðaskipsins Costa Concordia
- News of the World
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Forkosningar Repúblikana 2012
- Mótmæli í Grikklandi
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 19. nóvember 2008, Erlent Engar afsagnir vegna Baby P
- Miðvikudagur, 14. júlí 2010, Erlent Kveðst eiga Facebook
- Þriðjudagur, 25. nóvember 2008, Erlent Fullnustu refsingar frestað í Dubai
- Fimmtudagur, 25. febrúar 2010, Erlent Viðræður mili Indlands og Pakistans
- Mánudagur, 30. mars 2009, Erlent Bandarískur hermaður fyrir herrétt
-
Ofbeldið í Sýrlandi eykst
-
Adele í viðtali við 60 mínútur
-
Ingvar: Við verðum að vinna síðustu þrjá
-
Steinar Páll: Þetta var mjög gaman
-
Samsteypustjórnin samþykkti skilyrðin
-
Klám í Köben?
-
Norðurljósin utan úr geimnum
-
Harry prins kominn með þyrlupróf



































