Hart deilt um frammíkall
Enn er deilt í Bandaríkjunum um þingmanninn Joe Wilson, sem hrópaði: Þú lýgur, þegar Barack Obama, Bandaríkjaforseti, hélt ræðu um heilbrigðismál í Bandaríkjaþingi í síðustu viku. Wilson hefur þegar beðið Obama afsökunar og forsetinn hefur fallist á afsökunarbeiðnina en nú er þess krafist að þingið refsi honum með einhverjum hætti. Wilson neitar að biðjast afsökunar í þingsalnum.
„Ég ætla ekki að biðjast afsökunar aftur. Ég bað forsetann afsökunar á miðvikudagskvöld," sagði Wilson við Fox sjónvarpsstöðina.
Leiðtogar Demókrataflokksins í fulltrúadeild Bandaríkjaþings hafa hótað að víta Wilson ef hann biðst ekki formlega afsökunar úr ræðustól þingsins. Segja þeir að upphlaup hans undir ræðu Obama sé alvarlegt brot á siðareglum stjórnmálamanna.
Talsmaður Nancy Pelosi, forseta fulltrúadeildarinnar, sagði að þingmenn myndu grípa til aðgerða nú þegar enda hafi Wilson gert mönnum ljóst í viðtalinu við Fox hver hans afstaða væri.
Wilson sem er íhaldsmaður frá Suður-Karólínu, sagði að verið væri að reyna að beina athyglinni frá óvinsælum fyrirætlunum forsetans um breytingar á heilbrigðiskerfinu.
Þingmaðurinn greip fram í fyrir Obama þegar forsetinn lýsti því yfir í ræðunni, að ólöglegir innflytjendur myndu ekki njóta verndar samkvæmt tillögum um breytingar á heilbrigðistryggingakerfinu.
Obama sagðist á fimmtudag hafa fallist á afsökunarbeiðni Wilsons, sem hefur ekki farið leynt með að hann er andvígur því að réttindi ólöglegra innflytjenda verði aukin.
Bloggað um fréttina
-
Ridar T. Falls 6 orða saga #688 -
Jón Finnbogason Er þetta mikilvægt? -
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir Barack Obama á réttri leið -
Vala Andrésdóttir Withrow Innflytjendur eru ekki það sama og ólöglegir innflytjendur -
Jenný Anna Baldursdóttir Gamlar sálir minn afturendi
Erlent »
Föstudagur, 10.2.2012
- Reyna að losna við Grikki
- Árás á vefsvæði CIA
-
Samsteypustjórnin samþykkti skilyrðin
- Mynd ársins tekin í Jemen
- Banna eyrnastýfingu hunda
- Bannað að biðja á bæjarráðsfundum
- Vilja handtaka fulltrúa AGS
- Fyrirtækin slást um verkfræðingana
- Risaháfur á land
- Ævisaga Pútíns skyldulesning
- Átök á götum Aþenu
- Refsilaus mynd með nasistafána
- Þrír látnir og tveir særðir eftir gíslatöku
- Vill herskyldu fyrir konur
- Verkföll fyrir kjötkveðjuhátíð
- Ungir Rússar taka eigið líf
- Fraus í hel
- Lögsæki ekki dómara
- Segir minni tiltrú á SÞ
- Seldi CIA gögn um rússneskar eldflaugar
- Fræg bygging eldi að bráð
- Spilling verður N-Kóreu að falli
-
Enn gýs í Eldhringnum
- Leggja niður störf og mótmæla
-
Tvær bílasprengjur í Sýrlandi
- Heimilislausir í skjól í Bakú
- Garzón gefst ekki upp
Fimmtudagur, 9.2.2012
-
Undirbúa olíudælingu úr skipinu
- Átta ára barn meðal látinna
- Leyfa fyrsta kjarnorkuverið frá 1978
- Ætla ekki að færa andstöðunni vopn
- Borin kennsl á 162 lík
- Leggja fram kvörtun hjá SÞ
- Mossad þjálfar andófsmenn í Íran
- Verkalýðsfélög boða verkföll
- Færri fæðingar í Danmörku
- Garzón sakfelldur
- Rússar efins um þjóðabandalag
- Grikkir hafa náð niðurstöðu
- Dóná ísilögð í sex löndum
-
Mannskæð bílsprengja í Taílandi
- Slóvakar styðja Grikki ekki frekar
- Myrti stuðningsfulltrúa í Danmörku
- Cameron vill læra af Íslandi
-
Handtekinn forseti kom til Íslands
-
Bygging stóðst ekki kröfur
Erlend málefni
- Strand skemmtiferðaskipsins Costa Concordia
- News of the World
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Forkosningar Repúblikana 2012
- Mótmæli í Grikklandi
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 10. september 2009, Erlent Frammíköll Obama til framdráttar
- Miðvikudagur, 16. september 2009, Erlent Þingmaður áminntur fyrir að kalla Obama lygara
- Fimmtudagur, 10. september 2009, Erlent Obama krafðist aðgerða
- Miðvikudagur, 16. september 2009, Erlent Kynþáttahatur er undirrótin
- Þriðjudagur, 24. febrúar 2009, Erlent Beðið eftir ræðu Obamas
-
Fréttaflutningur aðeins dropi í hafið
-
Tekið á móti Suu Kyi sem rokkstjörnu
-
Veður hamlar aðgerðum á strandstað
-
Íranar fagna byltingarafmæli
-
Rómarborg snæviþakin
-
Ofbeldið í Sýrlandi eykst
-
Adele í viðtali við 60 mínútur
-
Ingvar: Við verðum að vinna síðustu þrjá




































