32 létust er bænaturn hrundi

Bænaturna bláu moskunnar í Istanbul ber við himinn.
Bænaturna bláu moskunnar í Istanbul ber við himinn. Retuers

Talið er að minnsta kosti 32  hafi látist og um fimmtíu slasast þegar bænaturn hrundi til grunna í bænum Meknes í Marokkó.

Samkvæmt upplýsingum frá yfirvöldum átti slysið sér stað um hádegi í dag á meðan á vikulegu bænahaldi stóð.

Ríkissjónvarpið í Marokkó hefur eftir innanríkisráðherranum þar í landi að líklega megi rekja hrun turnsins til mikilla rigninga að undanförnu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert