Björn beit fingur af konu

mbl.is

Kona á fimmtugsaldri missti tvo fingur auk hluta tveggja þegar hún reyndi að fóðra svartbjörn í dýragarði í bænum Manitowoc skammt frá Milwaukee í Bandaríkjunum. Konan hundsaði viðvörunarskilti og fór yfir girðingu til að komast nær birninum. Hún stakk þá hönd sinni inn fyrir rimla búrs bjarnarins.

Konan var í garðinum ásamt kærasta sínum og barnabarni. Kærastinn slasaðist einnig þegar hann reyndi að losa hönd konunnar úr kjafti bjarnarins. Að sögn lögreglu var konan undir áhrifum áfengis.

Birnirnir verða ekki aflífaðir.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert