Obama mætir ekki í jarðarför Kaczynskis

Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, mun ekki mæta í jarðarför pólska forsetans Lech Kaczynski vegna öskunnar úr Eyjafjallajökli sem hefur haft afar slæm áhrif á flugsamgöngur í Evrópu.

„Ég ræddi við starfandi forsetann (Bronislaw) Komorowski og sagði honum að mér þætti leitt að komast ekki til Póllands vegna öskunnar sem hefur hamlað flugumferð í Evrópu,“ sagði Obama í yfirlýsingu.

Barack Obama.
Barack Obama. LARRY DOWNING
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert