Brjálaðist við morgunverðarborðið

Byssueign er útbreidd í Kentucky.
Byssueign er útbreidd í Kentucky.

Ástæða þess að 47 ára gamall maður skaut fimm manns til bana í Kentucky í Bandaríkjunum í gær er að hann var óánægður með morgunverðinn. Meðal þeirra sem hann myrti var konan hans og stjúpdóttir.

Atburðurinn átti sér stað í hjólhýsahverfi. Eftir rifrildi við morgunverðarborðið elti Stanley Neace konu sína um hverfið. Hún flúði inn í hjólhýsi þar sem hann skaut hana, stjúpdóttur og þrjá aðrar sem þar voru. Hann fór síðan inn í hjólhýsi sitt og beindi byssunni að sjálfum sér.

Ástæðan fyrir því að Neace fékk æðiskast mun hafa verið sú að kona hans gaf honum soðin egg sem hann taldi að væru orðin köld.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert