Bandaríkjamenn blekktu Rússa

Frá herstöð Bandaríkjanna í Kirgistan.
Frá herstöð Bandaríkjanna í Kirgistan. Reuters

Blekkingar Bandaríkjahers varðandi tilgang flutninga á þotueldsneyti til Kirgistan hafa haft slæm áhrif á samskipti þeirra við Rússa og valdið ólgu í Kirgistan.

Pentagon réði tvö fyrirtæki til að villa um fyrir Rússum varðandi þessa flutninga.

Fyrirtækin tvö fölsuðu skjöl með aðstoð yfirvalda í Kirgistan og fólst blekkingin í að í þeim kom fram að eldsneytið væri ætlað til almennrar notkunar, en ekki í hernaðarlegum tilgangi.

Tilgangurinn var meðal annars að komast hjá mögulegum greiðslum á tollum.

Þegar upp komst um blekkingarnar stærðu Bandaríkjamenn sig af því að hafa snúið á Rússa og  hafði það neikvæð áhrif á samskipti ríkjanna tveggja. Í ljós hefur komið að rússneskum embættismönnum var greitt fyrir að hylma yfir flutningunum.

Bandaríkjamenn hafa greitt þessum tveimur fyrirtækjum a.m.k. tvo milljarða dollara fyrir að flytja eldsneyti

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert