80 farþegavélar kyrrsettar

Flugvélavirkjar Southwest Airlines skoða Boeing 737 í flugskýli á alþjóðaflugvellinum …
Flugvélavirkjar Southwest Airlines skoða Boeing 737 í flugskýli á alþjóðaflugvellinum í Phoenix. Reuters

Southwest Airlines hefur kyrrsett 80 flugvélar í kjölfar atviks sem átti sér stað í gær, en þá nauðlenti farþegaflugvél félagsins á herflugvelli í Arizona eftir að gat kom á þak vélarinnar. Opinber gögn sýna að sprungur hafi fundist á vélinni fyrir um ári en að gert hafi verið við þær.

Enginn slasaðist alvarlega í gær, en 118 voru um borð í vélinni þegar loftþrýstingur féll skyndilega í henni og varð flugstjórinn að lækka flugið skyndilega. Farþegunum brá og um stund greip um sig örvænting.

Flugstjóranum tókst að lenda örugglega á herflugvellinum sem er skammt frá Yuma, sem er suðvestur af Phoenix þaðan sem vélin tókst á loft.

Málið er nú til rannsóknar og hefur Southwest kyrrsett 80 svipaðar vélar vegna málsins, en umrædd vél er af gerðinni Boeing 737-300.

Farþegi í vélinni tók þessa mynd sem sýnir gatið í …
Farþegi í vélinni tók þessa mynd sem sýnir gatið í loftinu. re
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert