Myrti börn sín vegna forræðisdeilu

Edinborg.
Edinborg. Árni Sæberg.

Móðir í Skotlandi, sem myrti þrjú börn sín í síðastliðnum ágústmánuði, var dæmd í sextán ára fangelsi fyrr í dag. Móðirin, Theresa Riggi, stakk börn sín með hníf vegna þess að hún óttaðist að hún myndi missa forræði yfir þeim.

Riggi átti átta ára tvíburadrengi og fimm ára stúlku. Blóðug lík barnanna fundust á heimili þeirra í Edinborg eftir gassprengingu í húsinu. Riggi, sem er bandarísk, játaði á sig glæpinn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert