Bin Laden syrgður

Al Qaeda liðar í Pakistan fordæma dauða Osama bin Laden og segja hann hafa verið drepinn að ósekju. Mótmælendur gengu um götur borgarinnar Quetta í gær, veifuðu spjöldum með myndum af bin Laden og lofuðu hann og prísuðu.

Á meðan mótaði indverskur listamaður geysistórt höfuð í líki bin Ladens. Tilgangurinn var ekki að hylla hryðjuverkaforingjann, heldur til að benda á að allir hryðjuverkamenn þurfa að horfast í augu við endalokin.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert