Tilkynnt um fjöldagröf í Texas

Lögregla Texas og bandaríska alríkislögreglan FBI rannsaka nú tilkynningu um að 25-30 lík sé að finna í fjöldagröf. 

Lögregla í Libertysýslu segist hafa fengið ábendingu um, að 25-30 sundurhlutuð lík, þar á meðal lík af börnum, væru grafin við hús í Hardin, um 80 km norðaustur af Houston.

Vefur blaðsins Houston Cronicle sagði, að miðill hefði látið lögregluna vita um fjöldagröfina.

Bandaríska alríkislögreglan, FBI, rannsakar málið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert