Ætla að halda áfram að mótmæla

Mótmælendur vilja að stjórnmálamenn og bankamenn vakni og bregðist við …
Mótmælendur vilja að stjórnmálamenn og bankamenn vakni og bregðist við kröfum þeirra. Reuters

Mótmælendur í New York, sem hafa í hálfan mánuð mótmælt viðbrögðum við fjármálakreppunni, segjast ætla að halda áfram mótmælum eins lengi og þurfa þykir. Um 700 voru handteknir í gærkvöldi þegar umferð um Brooklyn-brúna var stöðvuð um tíma. Þeim hefur flestum verið sleppt.

Mótmælendur hafa slegið upp tjaldbúðum í garði nærri Wall Street. Fjölgað hefur smátt og smátt í hópi mótmælenda og segja þeir að nú sé verið að skipuleggja mótmæli víðar um Bandaríkin.

Kira Moyer-Sims, 19 ára stúlka frá Portland i Oregon-fylki, segir að mótmælin hafi breyst frá því þau hófust. Mótmælendur hafi skipulagt sig betur og menn viti betur hvernig eigi að bregðast við þegar fólk er handtekið.

Hún segir að engin áform séu uppi um að hætta mótmælendum. Þau muni halda áfram svo lengi sem þörf sé á þeim.

Mótmælendur eru óánægðir með hvernig fjármálakerfið hefur hagað sér á síðustu árum og eins hvernig almenningur hefur verið látinn greiða fyrir mistök einkabanka. Mótmælin beinast því bæði að bönkunum og stjórnmálamönnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert