Krefjast afnáms dauðarefsinga

Alexander Lúkasjenkó, forseti Hvíta-Rússlands
Alexander Lúkasjenkó, forseti Hvíta-Rússlands Reuters

Í dag er alþjóðlegur baráttudagur gegn dauðarefsingunni. Af því tilefni stendur Íslandsdeild Amnesty International fyrir undirskriftasöfnun til að þrýsta á forseta Hvíta-Rússlands, Alexander Lúkasjenkó, að afnema dauðarefsinguna og milda dóma yfir öllum þeim sem nú sitja á dauðadeild í landinu. Samtökin hvetja alla til að skrifa undir ákallið hér.

Hvíta-Rússland er eina landið í Evrópu sem enn beitir dauðarefsingunni. Um 400 manns hafa verið teknir af lífi frá því landið hlaut sjálfstæði árið 1991. Æ fleiri ríki hafna nú þessari ómannúðlegu refsingu, segir í tilkynningu frá Amnesty.

„Sönnunargögn benda til þess að fólk í varðhaldi í Hvíta-Rússlandi sé pyndað til að ná fram játningum. Fangar á dauðadeild vita af aftöku sinni örfáum stundum áður en henni er framfylgt. Þeir eru teknir af lífi með skoti í hnakkann. Ættingjar þeirra fá ekki líkið afhent og greftrunarstaðnum er haldið leyndum."


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert