Einungis sáttmáli fyrir evrusvæðið?

François Fillon, forsætisráðherra Frakklands.
François Fillon, forsætisráðherra Frakklands. Reuters

Forsætisráðherra Frakklands, François Fillon, sagði í dag að hann myndi helst vilja að nýr sáttmáli á vettvangi Evrópusambandsins, sem til stendur að koma á til þess að reyna að bjarga evrusvæðinu, yrði einskorðaður við evruríkin.

Fillon sagði samkvæmt fréttavefnum Euobserver.com að reynt yrði að ná samstöðu á meðal leiðtoga allra 27 ríkja ESB á fundi leiðtogaráðs sambandsins næstkomandi föstudag en tækist það ekki myndu evruríkin 17 koma sér saman um nýjan sáttmála án þátttöku þeirra ríkja sem ekki hafa tekið upp evruna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert