Einkunn björgunarsjóðsins lækkuð?

Reuters

Svo kann að fara að alþjóðlega matsfyrirtækið Standard & Poor's lækki lánshæfiseinkunn björgunarsjóðs evrusvæðisins um eitt eða tvö stig samkvæmt fréttavefnum Euobserver.com.

Ástæðan er sú að hætta er talin á að efnahagskreppan innan evrusvæðisins berist til helstu bakhjarla sjóðsins, sem eru þau evruríki sem hafa haft hæstu einkunn, en hætta er ennfremur talin á að einkunn þeirra verði að sama skapi lækkuð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert