Minnst tuttugu eru látnir og þónokkrir slasaðir eftir rútuslys skammt frá Sheikhupura í Punjab-héraði í austurhluta Pakistan seint í gær.
55 farþegar voru um borð og að sögn vitna valt rútan, sem var á leiðinni til Lahore, nokkrum sinnum.
Umferðarslys eru nokkuð algeng í sveitum Pakistans þar sem vegir eru slæmir og ökumenn fylgja sjaldnast umferðarreglum.