Fékk raflost frá lestarteini og lést

Reuters

27 ára karlmaður lést síðastliðna nótt þegar hann varð fyrir raflosti frá lestarteini á neðanjarðarlestarstöð í borginni Evanston í Illinois-ríki í Bandaríkjunum. Ekki er ljóst hvernig það gerðist nákvæmlega að maðurinn, Zachary McKee, varð fyrir raflosti en vitað er að hann klifraði niður á lestarteinana og virðist síðan hafa kastað af sér vatni þar.

Fremur er talið að hann hafi dottið á teinana en að hann hafi orðið fyrir raflosti þegar hann var að kasta af sér vatni. Fram kemur á fréttavef breska dagblaðsins Daily Telegraph að þrátt fyrir að margir telji annað sé mjög ólíklegt að það geti leitt til dauða að pissa á lestarteina.

Ekki liggur fyrir hvort McKee var undir áhrifum áfengis þegar hann ákvað að fara niður á lestarteinana en félagi hans gerði öryggisvörðum viðvart um það. McKee var hins vegar látinn þegar verðirnir komu að honum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert