Flugvél Hollandes varð fyrir eldingu

François Hollande tók við embætti forseta Frakklands af Nicolas Sarkozy …
François Hollande tók við embætti forseta Frakklands af Nicolas Sarkozy fyrr í dag AFP

Flugvél François Hollandes, forseta Frakklands, var snúið við  til Parísar eftir að flugvélin varð fyrir eldingu á leið sinni til Berlínar.

Samkvæmt frétt BBC er Hollande nú lagður af stað á ný til Berlínar með annarri flugvél og er gert ráð fyrir að hann lendi þar klukkan 19:30 að íslenskum tíma. Þar mun hann eiga fund með kanslara Þýskalands, Angelu Merkel, um efnahagsástandið í Evrópu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert