Obama kallar eftir rétta Romney

Barack Obama ætlar ekki að að leggjast í kör þrátt fyrir að það sé mál manna að andstæðingur hans í bandarísku forsetakosningunum, Mitt Romney, hafi haft betur í fyrstu umferð kappræðna frambjóðendanna.

Obama kallaði eftir því, á kosningafundi með stuðningsmönnum sínum í Denver, að „hinn raunverulegi Mitt Romney“ stigi fram. Sagði hann að sá Romney sem hefði mætt í fyrstu kappræðurnar væri ekki sá sami og hefði lofað umtalsverðum skattalækkunum áður. Hann hefði sveigt sér undan óþægilegum spurningum.

„Ég hitti þennan kankvísa mann sem segist vera Mitt Romney,“ sagði Obama. „En þetta getur ekki hafa verið Mitt Romney því hinn raunverulegi Mitt Romney hefur undanfarið ár farið um landið og lofað 5 trilljónum dollara skattalækkunum.“

„Sá sem var á sviðinu í gærkvöldi þóttist ekkert kannast við það. Hinn raunverulegi Mitt Romney sagði að við þyrftum ekki fleiri kennara í skólana. Sá sem var á sviðinu í gær, hann elskar kennara, getur hreinlega ekki fengið nóg af þeim,“ sagði Obama í háðstón.

„Ef þú vilt verða forseti, þá skuldar þú Bandaríkjamönnum sannleikann,“ sagði Obama  

Pólitískir skríbentar í Bandaríkjunum telja að með orðum sínum sé Obama að reyna að beina umræðunni frá því að hann hafi staðið sig illa í fyrstu kappræðunum.

Um 40 milljónir manna horfðu á kappræðurnar í sjónvarpi.

Romney mætti hins vegar óvænt á fund íhaldsmanna á ráðstefnu í Colorado. Þar sagði hann að þrátt fyrir að honum hafi gengið vel í kappræðunum sé enn langt í land. „Þetta verður jöfn barátta til enda,“ segir Romney. „Við þurfum að vinna í Colorado. Þið vitið að ef við gerum það þá vinnum Hvíta húsið til baka,“ segir hann.   

Í ræðu sinni réðst hann gegn sístækkandi ríkisumsvifum undir stjórn forsetans. „Ég held að Bandaríkjamenn trúi ekki á slíka stefnu,“ segir Romney.

Romney og Obama í einvíginu í gærnótt.
Romney og Obama í einvíginu í gærnótt. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert