Skaut son sinn fyrir slysni

mbl.is

Bandarískur faðir skaut sjö ára gamlan son sinn fyrir slysni þegar hann var að fara upp í bifreið sína í gær en hann hélt á skammbyssu sem hann hafði fest kaup á í byssuverslun.

Maðurinn hafði fjarlægt skotin úr byssunni en áttaði sig ekki á því að eitt hafði orðið eftir í skotstöðu en slysið átti sér stað í Mercer-sýslu norður af borginni Pittsburgh í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum.

Skotið hitti drenginn í brjóstið og lést hann af sárum sínum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert