Þjóðarleiðtogar mættir til útfarar

Nicolas Maduro, varaforseti Venesúela, verður settur í embætti forseta landsins í kvöld. stækka

Nicolas Maduro, varaforseti Venesúela, verður settur í embætti forseta landsins í kvöld. AFP

Nokkrir af helstu leiðtogum heims verða viðstaddir útför Hugo Chavez forseta Venesúela í höfuðborginni Karakas í dag.

Venesúelamenn búa sig nú undir líf án leiðtogans.

Hundruð þúsunda manna hafa safnast saman á götum borgarinnar undanfarna daga til að kveðja Chavez.

Útförin mun hefjast kl. 15.30 að íslenskum tíma við herskóla í borginni en þar hefur kista með líki Chavez staðið undanfarna daga. Í kvöld verður varaforseti landsins, Nicolas Maduro, settur í embætti forseta en líklega munu kosningar fara fram í landinu innan 30 daga.

Meðal þeirra sem mættir eru til útfararinnar eru Raul Castro, Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans og Hvítrússinn Alexander Lukashenko.

Lík Hugos Chavez til sýnis í herskóla.

Lík Hugos Chavez til sýnis í herskóla. AFP

Hugo Chavez lést á þriðjudag, 58 ára að aldri.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka
Vaktaðu heitapottinn!
Með einföldu kerfi getur þú vaktað hita og straum á heitapottinum. Vertur áhyggj...
ÓTRÚLEG VERÐ á 6 m fánastöngum og fánum.
TÆKIFÆRISGJÖF ALLRA ÍSLENDINGA TIL ALLRA ÍSLENDINGA. Flöggum! http://www...
Sage VXP flugustöng.
896-4 eða 9,6 feta, lína 8 í 4 hlutum. Kemur í álhólk. Sér ekki á henni enda ald...
Hjólhýsi
Til sölu vel með farið Hobbý Excellent 495 UFE hjólhýsi árgerð 2011. Aukabúnaður...
 
Sýslumaðurinn í reykjavík - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Bílar ríkiskaup

Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiðar og...
Research lawyer
Sérfræðistörf
RESEARCH LAWYER The EFTA Court in Lux...
Styrkur´- minningarsjóður karls j sighvatssonar

Stjórn Minningarsjóðs Karls J. Sighvatss...