Kveðst vera elsti maður heims

Bólivíski hirðirinn Carmelo Flores Laura kveðst vera elsti maður sem gengur á meðal oss á þessari jörðu. Laura býr í afskekktu þorpi, Frasquicia, og heldur því staðfast fram að hann sé 123 ára gamall. Bæjaryfirvöld eru tilbúin að staðfesta þessa staðhæfingu Laura.

Laura segist fæddur árið 1890 og þrátt fyrir háan aldur sé hann nokkuð vel til heilsu. Hann segist hafa orðið 123 ára í síðasta mánuði.

Þrátt fyrir að vera 123 ára gamall gengur Laura ekki við staf né notar hann gleraugu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert