Nauðgaði til að særa út illa anda

AFP

Ungur karlmaður frá Tógó er nú fyrir rétti í Frakklandi, ákærður fyrir að nauðga þremur unglingsstúlkum. Nauðganirnar voru hluti af vúdugöldrum og áttu að særa illa anda úr þeim.

Maðurinn á yfir höfði sér tuttugu ára fangelsisdóm. Hann er sakaður um að hafa nauðgað frænku kærustu sinnar og tveimur eldri systrum hennar.

„Ég gerði svolítið sem var ekki gott,“ sagði hinn 28 ára tveggja barna faðir í dómshúsinu í dag. Hann segist ekki lengur iðka vúdú.

Móðir stúlknanna er sögð hafa veitt samþykki sitt fyrir galdraathöfninni og hún er ákærð fyrir hlutdeild í ofbeldinu.

Nauðganirnar áttu sér stað á tímabilinu 2010-2011. Maðurinn er einnig ákærður fyrir að hafa skorið stúlkurnar í hendur og fætur og fyrir að hafa borið svart duft í sárin. Þá þvoði hann kynfæri stúlknanna.

Maðurinn var handtekinn í febrúar árið 2011. Dómur verður kveðinn upp í málinu á föstudag.

Annað slagið koma upp mál í Frakklandi sem tengjast vúdú en þar búa margir innflytjendur frá Vestur- og Mið-Afríku.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert