Stakk eiginmanninn 80 sinnum

AFP

Franska lögreglan handtók í dag konu sem stakk eiginmann sinn áttatíu sinnum með hníf eftir harkalegar deilur í gærkvöldi í bænum Nangis.

Á konan, sem er 35 ára gömul, að hafa játað hafa stungið eignmanninn, 42 ára. Samkvæmt skýrslu dánardómstjóra var maðurinn með á milli 70 og 80 stungusár á líkama sínum.

Ekki liggur fyrir hvað olli deilunum milli þeirra hjóna og hvers vegna hún stakk eiginmanninn til bana. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert