Pútín ræddi tillögu þings Krímskaga

Rússneski flotinn á Svartahafi. Krímskagi í baksýn.
Rússneski flotinn á Svartahafi. Krímskagi í baksýn. AFP

Vladimir Pútín, forseti Rússlands, ræddi við öryggisráð sitt í dag um þá tillögu þingsins á Krímskaga að sameinast Rússlandi. Þingið hefur boðað til þjóðaratkvæðagreiðslu meðal íbúa Krímskaga um hvort sameinast eigi Rússlandi. Skaginn tilheyrir Úkraínu í dag og er orðinn miðdepill átakanna þar í landi. 

Samkvæmt talsmanni Pútíns ræddi hann í dag við öryggisráð sitt um ástandið í Úkraínu, m.a. þá tillögu þings Krímskaga að sameinast Rússlandi. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert