Rob Ford hjá Jimmy Kimmel

Rob Ford
Rob Ford nymag.com

Rob Ford, borgarstjóri Toronto, var gestur bandaríska þáttastjórnandans og gríninstans Jimmys Kimmels í síðustu viku. Kimmel sagðist hafa verið mjög hissa þegar borgarstjórinn féllst á að koma í þáttinn til hans, og gerði stólpagrín að þessum umdeilda stjórnmálamanni.

Þeir fóru í sameiningu yfir nokkur af þekktustu myndböndum borgarstjórans, en hann hefur reglulega komist í vanda vegna ýmiskonar misferlis og hefur verið sviptur flestum þeim völdum sem fylgja borgarstjóraembættinu.

Þrátt fyrir það býður hann sig fram til borgarstjóra á ný í kosningum sem fara fram hinn 27. október.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert