Valdatíð Ford lokið í Toronto

Rob Ford var ekki í framboði en bróðir hans var …
Rob Ford var ekki í framboði en bróðir hans var í framboði þess í stað. AFP

John Tory er nýr borgarstjóri í Toronto en hann fékk 40% atkvæða þegar borgarbúar kusu sér nýjan borgarstjóra í gær. Doug Ford, bróðir fyrrverandi borgarstjóra Rob Ford, fékk 34% og Olivia Chow fékk 23% atkvæða.

Rob Ford hraktist frá völdum eftir að hafa viðurkennt að hafa misnotað áfengi og krakk kókaín á meðan hann gegndi starfi borgarstjóra. Hann tilkynnti í síðasta mánuði að hann myndi ekki sækjast eftir endurkjöri þar sem hann er í krabbameinsmeðferð, samkvæmt frétt BBC.

Ég á helmingslíkur

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert