15 létust í sjálfsvígsárás

Nýr forseti verður kjörinn í Afganistan þann 5. apríl og …
Nýr forseti verður kjörinn í Afganistan þann 5. apríl og óttast margir að átök eigi eftir að magnast upp í landinu þangað til. AFP

Fimmtán létust í sjálfsvígsárás á markaði í norðurhluta Afganistans í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá stjórnvöldum er verið að auka öryggisgæslu í landinu vegna komandi forsetakosninga.

Enginn hefur lýst yfir ábyrgð á tilræðinu í borginni Maimanah í Faryab-héraði við landamæri Túrkmekistans.

Mikið fjölmenni var á markaðnum þegar sprengjan sprakk. Allir þeir sem létust voru annaðhvort viðskiptavinir á markaðnum eða sölumenn. 27 slösuðust í árásinni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert