Allir verða að klippa sig eins og Kim Jong-un

Kim Jong-Un með sína undarlegu klippingu.
Kim Jong-Un með sína undarlegu klippingu. AFP

Samkvæmt nýjum reglum verða allir karlmenn í Norður-Kóreu að vera eins klipptir og leiðtogi landsins, Kim Jong-un. Nýju reglurnar tóku gildi fyrir tveimur vikum. Ekki eru allir hrifnir af þessu nýjasta uppátæki forsetans.

„Klipping leiðtoga okkar er mjög sérstök, ef svo mætti segja,“ segir einn viðmælandi BBC. „Hún passar ekki öllum, því andlit fólks og höfuðlag er mismunandi.“

Þá er klippingin ekki vinsæl þar sem hún þykir minna á kínverska smyglara.

Í frétt BBC um málið segir að hingað til hafi konur fengið að velja á milli átján ólíkra klippinga og karlar milli tíu. 

Frétt BBC.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert