Látnir menn dæmdir til dauða

Ættingjar þeirra sem dæmdir voru til dauða syrgðu fyrir utan …
Ættingjar þeirra sem dæmdir voru til dauða syrgðu fyrir utan dómshúsið í dag. AFP

Þrír menn sem létust í mótmælunum í Egyptalandi voru á meðal þeirra 683 liðsmanna Bræðralags múslíma sem dæmdir voru til dauða í dag.

Réttarhöldin vörðu einungis í tíu mínútur að sögn Khaled Elkomy, verjanda í málinu. Enginn var færður fyrir dómara til þess að gefa skýrslu. Verjandinn lýsir réttarhöldunum sem dómstóla-farsa þar sem staðreyndir málsins hefðu ekki einu sinni verið skoðaðar.

Þá var bent á að einn af þeim ákærðu hefði ekki tekið þátt í mótmælunum heldur hafi hann einungis verið á lista yfir sakborninga þar sem hann neitaði að greiða lögreglumanni peninga.

Einungis 73 af þeim sem hlutu dauðadóm eru í haldi lögreglu. Að sögn saksóknara eiga þeir sem gefa sig fram við lögreglu rétt á nýjum réttarhöldum.

Mikil sorg ríkti þegar dómurinn var kveðinn upp fyrir utan dómshúsið þar sem ættingjar margra þeirra er dæmdir voru til dauða féllu í yfirlið.

Þeir sem dæmdir voru til dauða í dag voru flestir ákærðir fyrir aðild að morði og morðtilraun á lögreglumönnum í Minya héraði þann 14. ágúst í fyrra þegar lögregla drap hundruð stuðningsmanna Morsis í átökum í Kaíró.

Ættingjar féllu í yfirlið er dómurinn var kveðinn upp.
Ættingjar féllu í yfirlið er dómurinn var kveðinn upp. AFP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert