15 ára hugðist myrða fjölskyldu sína

AFP

Unglingsstúka frá Michigan í Bandaríkjunum hefur ásamt kærasta sínum verið ákærð fyrir að skipuleggja morð á allri fjölskyldu sinni. Stúlkan hugðist myrða alla fjölskyldumeðlimi sína og stinga svo af með kærasta sínum.

Stúlkan, sem er 15 ára gömul, er sökuð um að stinga 12 ára gamlan bróður sinn í hálsinn og þar næst gera tilraun til að stinga yngri systur sína. Atvikið átti sér stað þann 17. október sl. á heimili fjölskyldunnar í Plymoth Township. Bróðirinn var færður á sjúkrahús með nokkur stungusár.

Kærasti stúlkunnar, sem er 23 ára gamall, var fyrir utan húsið og sendi stúlkunni smáskilaboð með leiðbeiningum um það hvernig hún ætti að fremja glæpinn. Honum er nú haldið í gæsluvarðhaldi fyrir skipulagningu á morðunum og ásetning um að fremja þau.

Stúlkunni er einnig haldið í gæsluvarðhaldi, en hún var ásökuð um skipulagningu á morðunum og fyrir eina morðtilraun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert