Tveir létust er svalir hrundu

AFP

Tveir létust og sex voru fluttir slasaðir á sjúkrahús eftir að svalir hrundu í Knightsbridge-hverfinu í London í morgun. Slysið átti sér stað við Cadogan-torg, í einu ríkasta hverfi borgarinnar.

Í frétt Sky um málið segir að slysið hafi átt sér stað rétt fyrir kl. 10 í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni var verið að flytja úr íbúð hússins er svalirnar hrundu. Mennirnir sem létust voru flutningamenn. Þeir voru að flytja sófa út úr íbúðinni og út á svalir er þær hrundu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert