Fékk lögreglu til að fylgjast með flengingu

Barn flengt í Þýskalandi árið 1935.
Barn flengt í Þýskalandi árið 1935. Ljósmynd/German Federal Archives

Lögreglan í bandaríska smábænum Okeechobee í Flórídaríki fékk á dögunum símtal frá föður í bænum sem óskaði nærveru lögreglumanns á meðan hann refsaði dóttur sinni. Lögreglumaður var sendur á vettvang og fylgdist með því þegar faðirinn flengdi tólf ára dóttur sína fjórum sinnum á rasskinnarnar.

Forsagan er sú að faðirinn, Dale Garcia, kom heim úr verslunarleiðangri í Walmart og sá þá að tólf ára dætur hans tvær höfðu verið að rífast. Önnur þeirra læsti sig inni í herbergi sínu og hin notaði hníf til að opna inn í herbergið.

Hringdi því faðirinn á lögregluna því hann vildi refsa þeirri sem notaði hnífinn. Stúlkurnar viðurkenndu fyrir lögreglumanninum að þær hefðu verið að rífast um spjaldtölvu og stóð hann hjá á meðan faðirinn flengdi dóttur sína. Síðar skrifaði hann í lögregluskýrslu um málið: „Þar sem enginn glæpur hefur verið framinn er málinu lokið.“

Í samtali við fréttastofuna WPTV segir lögreglumaðurinn Noel Stephen að símtöl sem þessi séu ekki einsdæmi og reyni lögreglumenn að sinna þeim séu ekki önnur mál sem bíði.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert