Milljón manna gengur um götur Parísar

Fólk hefur klappað og sungið í göngunni í dag, en …
Fólk hefur klappað og sungið í göngunni í dag, en einnig fallist í faðma og grátið. AFP

Mörg þúsund manns streyma nú út á götur Parísarborgar úr öllum áttum að Lýðveldistorginu. Þar mun fara fram samstöðuganga vegna hryðjuverkanna í borginni í vikunni. Sautján manns létu lífið í árásunum.  

Neðar í fréttinni má sjá beina útsendingu frá göngunni og fundinum. 

Fólkið hrópar meðal annars, „Charlie, Charlie“ í minningu blaðamannanna og skopmyndateiknaranna sem voru myrtir á skrifstofum Charlie Hebdo.

Að sögn blaðamanns BBC sem er á staðnum er slagorðið Je suis Charlie, eða Ég er Charlie, áberandi meðal fólksins. Sumir klæðast bolum með slagorðinu, aðrir halda á heimagerðum skiltum. 

Mik­ill viðbúnaður er vegna fund­ar­ins og munu tvö þúsund lög­reglu­menn og á annað þúsund hermanna sjá um ör­ygg­is­gæslu. 

Fjölmargir þjóðarleiðtogar hafa boðað komu sína á fundinn en þeirra á meðal eru Ang­ela Merkel, kansl­ari Þýska­lands, Dav­id Ca­meron, for­sæt­is­ráðherra Bret­lands, og Benjam­in Net­anya­hu, for­sæt­is­ráðherra Ísra­els.

Alls verða 34 leiðtogar Evrópuríkja viðstaddir fundinn. 

Samstaða í bæjum og borgum

Fólk safnast ekki aðeins saman í París í dag heldur í bæjum og borgum víða um landið. 

Tæplega 10 þúsund manns gengu götur smábæjarins Dammartin-en-Goele, þar sem bræðurnir tveir tóku starfsfólk prentsmiðju í gíslingu og létu síðar lífið þegar lögregla gerði áhlaup á húsnæðið. 

Í smábænum Saint-Etienne í suðausturhluta Frakklands komu 60 þúsund manns saman. Það er um einn þriðji þeirra sem búa í bænum. 

Hér má sjá beina útsendingu frá samstöðugöngunni: 

Uppfært kl. 15.56:

Um 60 þjóðarleiðtogar eru meðal þátttakenda í samstöðugöngu sem nú stendur yfir í París. Við hlið Francois Hollande Frakklandsforseta ganga meðal annarra Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, og Mahmud Abbas, forseti Palestínu.

Formlegheit voru látin víkja þegar forsetar, forsætisráðherrar og önnur fyrirmenni tóku sér sæti í hópferðabifreið sem flutti þau í gönguna. Að því er fram kemur á Guardian fara eftirlifendur árásanna og fjölskyldur þeirra sem voru myrtir fyrir göngunni, með hvít höfuðbönd og margir með tárvot augu, en á eftir fylgja þjóðarleitogarnir, sem margir hverjir héldust í arma við upphaf göngunnar.

Þá hafa leiðtogar margra trúarbragða fylkt liði fyrir aftan fána sem áletrunina „Við erum Charlie.“

Talið er að milljón manns taki þátt í göngunni, sem hófst skammt frá ritstjórnarskrifstofum Charlie Hebdo, þar sem 12 létust í árásinni á fimmtudag.

Um 2.200 lögreglu- og sérsveitarmenn fylgjast með fólksfjöldanum, þeirra á meðal leyniskyttur á nálægum húsþökum.

Víða í göngunni hefur brotist út lófaklapp og þá hafa þátttakendur sungið franska þjóðsönginn og hrópað „Charlie, Charlie!“

Meðal annarra þjóðarleiðtoga í göngunni eru Angela Merkel, kanslari Þýskalands, David Cameron, forsætirsráðherra Bretlands, og Matteo Renzi, forsætisráðherra Ítalíu. Eric Holder, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, er staðgengill Barack Obama forseta í göngunni. Þá eru konungurinn og drottninginn af Jórdan meðal þátttakenda.

Gert er ráð fyrir að ein milljón manna safnist saman …
Gert er ráð fyrir að ein milljón manna safnist saman á samstöðufundi í París í dag. Myndin er frá Lýðveldistorginu í borginni. AFP
Fjöldi þjóðarleiðtoga tekur þátt í göngunni.
Fjöldi þjóðarleiðtoga tekur þátt í göngunni. AFP
Þátttakendur í göngunni hafa margir með sér spjöld með hinum …
Þátttakendur í göngunni hafa margir með sér spjöld með hinum ýmsu skilaboðum. AFP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert