Játaði að hafa myrt 6 barna sinna

Megan Huntsman
Megan Huntsman

Kona frá Utah í Bandaríkjunum hefur játað að hafa myrt sex nýfædd börn sín á tíu ára tímabili og komið þeim fyrir í bílskúr við heimili sitt. 

Konan, sem heitir Megan Huntsman og er 39 ára gömul, á yfir höfði sér lífstíðarfangelsi. Dómur verður kveðinn upp yfir henni 20. apríl nk. 

Fyrrum eiginmaður konunnar, Darren West, fann líkin í apríl á síðasta ári þegar hann var að taka til í bílskúrnum. Alls fundust lík sjö barna, en það sjöunda hafði fæðst andvana. 

Huntsman sagði lögreglu að hún hefði myrt öll börnin um leið og þau fæddust, með því að kyrkja þau eða kæfa. Hún vafði handklæðum utan um þau og kom þeim fyrir í plastpokum sem hún setti í kassa í bílskúrnum. 

Samkvæmt lögreglu myrti Huntsman börnin á 10 ára tímabili, frá árinu 1996 til ársins 2006. Sagði hún lögreglu að á þessu tímabili hafi hún verið háð fíkniefnum og hafi ekki viljað sjá um börnin.

DNA-rannsókn leiddi í ljós að öll börnin voru hennar og West faðir þeirra allra. Þau fæddust öll heilbrigð.

West fann líkin stuttu eftir að hann losnaði úr fangelsi fyrir eiturlyfjabrot, en hann hafði setið inni í átta ár. Hann liggur ekki undir grun í málinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert