Actavis styður við hjálparstarf í Nepal

AFP

Actavis plc, móðurfélag Actavis hérlendis, hefur ákveðið að leggja hjálparstarfi í Nepal lið í kjölfar náttúruhamfaranna þar í landi um u.þ.b. 3,5 milljónir íslenskra króna í gegnum bresku hjálparsamtökin International Health Partners (IHP). Auk þess er Actavis að skoða leiðir til að gefa nauðsynleg lyf og lækningavörur til Nepal í gegnum IHP og aðrar hjálparstofnanir sem fyrirtækið er í samstarfi við.

Actavis gerði nýverið samstarfssamning við IHP en markmið samtakanna er að auka aðgengi að lyfjum og lækningavörum í þróunarlöndunum. Actavis hefur stutt IHP að undanförnu m.a. með því að gefa nauðsynleg lyf og búnað sem ætlaður er til fyrstu hjálpar barna, segir í fréttatilkynningu sem Actavis hefur sent frá sér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert